Við bjóðum upp á heilnudd og partanudd, heilnudd er ca.50 mínútna slökunnarnudd þar sem nuddað er frá toppi til táar, þetta er hið svokallaða sænska nudd sem er slökunnarnudd sem hentar öllum aðilum, einnig er hægt að fá partanudd þar sem lögð er áherlsa á tvenn eða færri svæði.


Þá er nuddað upp úr hreinum ilmkjarnaolíum sem henta hverjum og einum, t.d slakandi, róandi eða vatnslosandi. Líkaminn er nuddaður frá toppi til táar með rólegum strokum og þrýstipunktum.


Einstök meðferð þar sem þreytan líður úr þér og líkaminn endurnærist. Byrjað er að skrúbba allan líkamann upp úr kornaskrúbb með gullflögum í og þar næst djúpt vöðvanudd á allan líkamann. Nuddað er upp úr púðri með ekta 24 karata gullflögum og húðin verður silkimjúk og glansandi.


Unnið er á sogæðakerfinu á fótum og upphandlegg m/hreinum ilmolíum. Svo er borinn á maski t.d. vatnslosandi, stinnandi eða róandi. Mjög gott fyrir þreytta fætur.


Hefur vatns- og eiturefnalosandi áhrif á vefina vegna djúpstæðrar örvunar á efnaskiptin. Minnkun á verkjum og vöðvakrömpum, og jafnvægi kemst á helstu líffærakerfin. Í heildina litið, einstök slökun.


Faradic slim er tölvustýrt raftæki sem stinnir, styrkir og mótar vöðva líkamans og hefur einnig góð áhrif á appelsínuhúð. Tækið veldur samdrætti í vöðvum á sársaukalausan hátt og verður þá svipuð líkamleg áhrif og af sjálpráðri þjálfun.

Áhrif faradic slim; vöðvaþræðir styrkjast og vöðvatónus batnar, efnaskipti örvast, blóðrás eykst, aukin losun úrgangsefna vegna örvunnar sogæðakerfis – sérstaklega mjólkursýru, vöðvabygging þéttist og styrkist almennt sem veldur því að við missum cm á réttum stöðum. Hver tími tekur um 20 mínútur.


G-5 cellónudd örvar blóðflæði til húðar, losar um fasta fitu og eykur þ.a.l. úrgangsefnalosun og minnkar appelsínuhúð. Einnig slakar  og sefar sára vöðva. Mjög gott fyrir fólk með vöðvabólgu.


Meðferð sem örvar blóðflæði húðarinnar og eykur þar af leiðandi úrgangsefnalosun. Húðin verður stinnari og sléttari strax eftir fyrsta tíma. Borin eru gel á húðina frá ökla og alveg undir brjóst og á handleggi, svo er vafin filma þétt yfir. 45 mínútna meðferð og hægt að fá slakandi andlitsnudd á meðan beðið er með vafningana.


Boðið er upp á vaxmeðferðir til að fjarlægja óæskilegan hárvöxt, við bjóðum upp á vax upp að hjám, alla leið, í nára, bak, rass, undir hendur, á hendur, í andlit og einnig bjóðum við upp á brasilískt vax.

© Fegurð snyrtistofa 2006 - vefumsjon: afi@mi.is