|
|


Við bjóðum upp á andlits- og líkamsmeðferðir, nudd, vax, airbrush, fótsnyrtingu og handsnyrtingu fyrir karlmenn. Einnig bjóðum við upp á snyrtivörur frá [comfort zone] til sölu sem eru ætlaðar karlmönnum eingöngu.
Eins og staðan er í dag þykir ekki lengur tiltöku mál þó að karlmenn leggi leið sína á snyrtistofur, karlmenn í dag eru mun meira meðvitaðir um umhirðu húðar og hvað þarf til að viðhalda strákslegu útliti sínu sem lengst. En það þýðir að það er ekki nóg að raka sig og spreyja síðan rakspíra yfir opna húðina og fá útbrot eftir raksturinn, það þarf að nota milda og góða raksápu sem er með ph-gildi þau sömu og er í húðinni, það þarf að nota krem eftir raksturinn til að loka húðinni, svo er hægt að spreyja á sig rakspíra.
Þetta er allavega byrjuninn á góðri umhirðu, svo er mjög gott að koma reglulega í andlitsbað með smá hreinsun, þar tökum við á þeim vandamálum sem geta komið upp á húð karlmanna. Við byrjum á því að hreinsa húðina af dauðum yfirborðsfrumum, gefum henni svo gott nudd til að örva blóðflæði í andlitinu og svo fá þeir sérvaldan maska sem hentar þeirra húðgerð einstaklega vel. Einnig veitum við persónulega og faglega þjónustu um áframhaldandi meðferð.

|