
Snyrtistofan Fegurð notar eingöngu hágæða snyrtivörur í andlitsmeðferðir sínar, notum við merkið [comfort zone]

Byrjað er á að greina húðgerð viðskiptavinarins til að skilgreina hvaða áherslu við munum leggja á í andlitsbaðinu. Yfirborðshreinsun, 20 mínútna nudd á bringu, herðum, háls, andlit og höfuð. Svo er borinn á maski með áherslu á húðgerð og til að fullkomna andlitsbaðið er borið á augn- og andlitskrem einnig með áherslu á húðgerð.

Öflug andlitslyfting sem er framkvæmd með raftækjum. Meðferðin er sársaukalaus og veitir viðskiptavinum góða slökun.
Áhrif meðferðar:
-
Örvar háræðastreymi – bætir næringu og súrefnisflæði vefja.
- Örvar fibroblasta húðar – bætir magn og gæði kollagens.
- Örvar sogæðastreymi húðar.
Andlitslyfting með raftækjum hentar vel:
-
slakri húð – slöpp og líflaus,
-
eldri húð – hefta ótímabæra öldrun og húð sem sýnir þreytumerki.

Frábært andlitsbað sem hentar öllum húðgerðum. Í þessu andlitsbaði eru notuð raftæki og með þeim er hægt m.a. að veita meiri raka, meiri hreinsun og uppbyggingu fyrir þreytta og slappa húð.
Byrjað er á yfirborðshreinsun, djúphreinsun með gufu og kreistun ef þarf. Raftæki notað með efnum eftir húðgerð þar næst 30 mínútna nudd á andlit, háls, herðar, bringu og höfuð. Svo er borinn á maski og til að fullkomna andlitsbaðið er borið á augn- og andlitskrem. Þessu andlitsbaði fylgir plokkun og nudd á hendur.

Öflug endurnýjandi, endurlífgandi og djúp rakagefandi meðferð sem örvar blóðrás og frumustarfsemi. Fullkomin áferð, fylltari húð, minni línur, aukinn raki og endurnýjaður ljómi.
Byrjað er á yfirborðshreinsun, svo er borið á alphatherapy sýra á andlit og látin bíða í 4-10 min. Á meðan beðið er er háls og höfuð nuddað. Sýran tekin af og rakagefandi ampúla borin á andlit og háls. Svo tekur við góð slökun með 20 mínútna nuddi á andlit, háls, bringu, herðar og höfuð. Því næst er hreinn kollagen maski settur á andlit og látin bíða í 15-20 mínútur. Til að fullkomna meðferðina er svo í lokin borið augn- og andlitskrem eftir húðgerð. Þessari andlitsmeðferð fylgir plokkun og nudd á hendur.

Yngjandi meðferð sem veitir vörunum fyllingu. Sérstök meðferð fyrir varir og varasvæði, sem dregur úr línum fyrir tilstilli rósa og ávaxtaþykknis. Endurnærðar og þéttari varir. Tilvalið að bæta þessari meðferð inn í andlitsbað.

Sérstök yngjandi meðferð fyrir augnsvæðið sem dregur út þrota, baugum og línum. Veitir djúpa næringu og vörn gegn stakeinkdavirkni. Dökkir baugar, þroti og hrukkur minnka sjáanlega á meðan húðin öðlast fullkominn raka og vörn. Tilvalið að bæta þessari meðferð inn í andlitsbað.

Gott fyrir flestar húðgerðir að koma annaðslagið í húðhreinsun. Fílapenslar og önnur húðóhreinindi eru hreinsuð upp og reynt er að koma jafnvægi á fituframleiðslu húðar. Byrjað er á yfirborðshreinsun, djúphreinsun með gufu og kreistun. Hreinsandi og jafnvægisstillandi maski borinn á í lokin, því næst augn- og andlitskrem eftir húðgerð.

Svipað og húðhreinsun nema notast er við raftæki til að fá betri og dýpri hreinsun. Notast er við hátíðni og súrefniskrem sem hjálpar húðinni að endurnýja og hreinsa

Hentar vel öllum húðgerðum en þó sérstaklega fyrir feita, bólótta vandamálahúð. Sýran kemur jafnvægi á fitu- og rakastig húðarinnar og hefur húðflögnunareiginleika. Mjög gott fyrir litabletti og ójöfnur í húð.

30 mínútna meðferð þar sem lituð eru augnhár og augabrúnir með ekta lit. Augabrúnirnar eru svo ýmist plokkaðar eða vaxaðar með heitu vaxi eftir ósk viðskiptavinarins.

Óæskilegur hárvöxtur í andliti er fjarlægður með vaxi.
|