|
|


Airbrush brúnkumeðferðir eru nýjungar á markaðinum í dag sem er að keyra allt um koll hérlendis og erlendis. Í airbrush er hægt að verða fallega brúnn án þess að hafa áhyggjur af skaðlegum áhrifum sólar eða ljósabekkja, eða brenna. Airbrush er efni sem sprautað er á líkaman og innan fárra klukkatíma hefur líkaminn náð ótrúlega fallega brúnum lit sem dugir í allt að 6-10 dögum, en það fer mikið eftir rakamagni húðar. Airbrush hentar vel fyrir alla þá sem vilja líta frísklega út og hentar vel fyrir öll tækifæri.

Einnig bjóðum við upp á airbrush meðferð með skrúbb og mælum við einstaklega með því að konur komi í skrúbb fyrir airbrush meðferð, með skrúbbnum eru dauðar húðfrumur fjarlægðar af yfirborði húðar, blóðstreymi til húðar eykst og þar af leiðandi raki húðar líka. Með þessu móti verður liturinn jafnari, fallegri og dugir lengur. Einnig mælum við með því að notað sé rakakrem á líkamann næstu daga eftir airbrush til að gefa húðinni góðan raka, þannig endist liturinn lengur og húðin fær góða næringu.
|